Já ég er bara nýbyrjaður að spila þennan dásamlega leik og virðist bara ganga nokkuð vel. Byrjaði með Djurgården í sænsku deildinni og búinn að vinna hana 3. sinnum og sænska bikarinn 3 líka. Það er bara eitt pirrandi og það er þegar ég bið um að stækka völlinn og mér er tjáð að það sé ekki hægt þar sem liðið eigi ekki völlinn. Er nokkur leið til að kaupa völlinn eða semja við eigendur um stækkun hans?