Ég bað Vefstjóra nýlega um að fá að verða leystur frá störfum sem admin á hugi.is/CM. Ástæðan er sú að leikurinn höfðar ekki jafn mikið til mín og áður. Mér finnst CM4 standa öllum forverum sínum langt að baki, þrátt fyrir nýjungarnar, og jaðra við að vera móðgun við hið goðsagnakennda nafn Championship manager. Ef CM5 verður líkari t.d. CM3 er aldrei að vita nema maður snúi aftur, virkur sem aldrei áður, en þó ekki sem stjórnandi. Enda eru pires og wbdaz heldur betur að standa sig í stykkinu og eiga þeir hrós skilið.

Því kveð ég að sinni og þakka fyrir samstarfið.

Hvati,
fyrrum champari af lífi og sál<br><br><a href="http://kasmir.hugi.is/Hvati">Honda Civic 1500 LSi VTEC til sölu</a