Ég fór um daginn út til að gera heiðarlega tilraun til að taka sjálfsmynd. Ég greip með mér það fyrsta sem mér datt í hug, blöðru úr afmæli frá því daginn áður. Stillti myndavélinni upp, henti frá mér peysunni og setti á timer. Það heppnaðist ekki betur en það að peysan fauk í burtu og ég var skíthrædd um að þrífóturinn myndi ekki þola rokið, svo úr þessu kom bara ein mynd. Seinna um daginn heyrði ég um þakplötur fjúkandi um allan bæ …Ég veit að þetta er tæknilega mjög slæm mynd og það þarf ekkert að benda mér á það. Mér finnst hún samt ekki svo slæm :)








