Afmæli Ég fór um daginn út til að gera heiðarlega tilraun til að taka sjálfsmynd. Ég greip með mér það fyrsta sem mér datt í hug, blöðru úr afmæli frá því daginn áður. Stillti myndavélinni upp, henti frá mér peysunni og setti á timer. Það heppnaðist ekki betur en það að peysan fauk í burtu og ég var skíthrædd um að þrífóturinn myndi ekki þola rokið, svo úr þessu kom bara ein mynd. Seinna um daginn heyrði ég um þakplötur fjúkandi um allan bæ …

Ég veit að þetta er tæknilega mjög slæm mynd og það þarf ekkert að benda mér á það. Mér finnst hún samt ekki svo slæm :)