Laufin
halda fast í lífið,
vita hvað
annars verður.
Gefast þó upp,
eitt af öðru,
fyrir óvægnum
árásum vindsins.
Hrapa hægt
í dauðann,
í rotnandi hrúgur
fallinna félaga.