Á maður að þora að senda inn smá bull hérna? Líklega, annars væri ég ekki að gera þennan kork…

Þetta er eitthvað sem ég samdi fyrir löngu og fann í stílabókinni minni í gær. Öll gagngrýni vel þegin.

Til hans:

Ég veit ekki hvaðan þú kemur
Eða hvernig þú lítur út
Veit ei hvað þú heitir, varla neitt
Um þig veit ég aðeins eitt.

Ég veit þú ert sá sem ég elska
Og hann sem ég ætíð ann
Hvenær ég finn þig, það veit Guð einn
Vinur minn, vertu' ekki of seinn.

Þú ert hinn fullkomni maður
Elskar og skilur mér allt
Utan galla, þig einan ég vil
En kannski ertu' ekki til?
We're just two lost souls wimming in a fish bowl.