Ljóð eftir megas.

Ef þú ert kvalin örgum pínslum
illra meina sífelldri nauð
og vondra manna mörgum klækjum
mildi guðs að þú ert ekki dauð
þá vappa skalltu inní víðihlíð
víðihlíð og víðihlíð
og vera þar síðan alla tíð
alla þína tíð

ef þú kúrir ein í horni
enginn þér sinnir þá græturðu lágt
og fáirðu matinn kaldan og klénan
og kjötið það sé bæði vont og hrátt
þá vappa skalltu inní víðihlíð
víðihlíð og víðihlíð
og vera þar síðan alla tíð
alla þína tíð

ef börnin í þig ónotum hreyta
æskirðu liðsinns buguð af þraut
og bóndinn hann segir bless og er farinn
þá búið það tekur að vanta graut
þá vappa skalltu inní víðihlíð
víðihlíð og víðihlíð
og vera þar síðan alla tíð
alla þína tíð

í víðurhlíð eru veður blíð
vondir kallar þeir sjást ekki þar
og ótal stúlkur stökkvandi til þín
stefna og færa þér gnótt matar
já valhoppaðu inn í víðihlíð
víðihlíð og víðihlíð
og vera þar síðan alla tíð
alla þína tíð

þær votta þér samúð votum hvörmum
og vítur samþykkja á pakkið illt og spillt
og sýna þér góðvild í einu og öllu
og eyrun sperra þá græturðu milt og stillt
já valhoppaðu inn í víðihlíð
víðihlíð og víðihlíð
og vertu þar síðan alla tíð
alla þína tíð.