Samkvæmt nýjustu rannsóknum
eru Íslendingar hamingjusamasta fólk í heimi.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum
nota Íslendingar mest geðlyf allra þjóða.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum
eru Íslenskar konur þær fallegustu í heimi.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum
notar íslenskt kvenfólk mesta meik-uppið.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum
eru Íslendingar bestir miðað við höfðatölu deilt með þremur.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum
er allt sem þú lest lygi.