Í leit að sjálfum mér
fann ég þig.
Þú varst ekkert ólík mér
en þó varstu ekki ég.
Ég gekk framhjá þér
og hélt sjálfsleitinni áfram.
Ég fann sjálfan mig
einmanna og villtan.
Ég hefði kannski átt að staldra við
hjá þér.