Mínar nætur
eru ekki bláar,
þó sumar þeirra
þekki ekki svefninn.
Nei,
ekki bláar.
Grænar –
Eins og
gras að sumri,
haf um vetur.
Eins og
augun hans
eru mínar nætur.