Skildi Ekki Neitt

Hann sat upp að bekk,
sínum eina vin

Skildi ekki neitt

en hafði eitt sinn von
átti eitt sinn son

Hann var í sömu fötum
og fyrir ári

Skildi ekki neitt

en hafði eitt sinn vinnu
átti eitt sinn kvinnu

Hann hafði farið út af
hinum rétta veg

Skildi ekki neitt

en hafði eitt sinn hangið
í eymd sem fangi

Honum var hent út
Það var ekkert pláss

Réttlætið virkaði svona
vinir hans hættu að vona

Og nú sefur hann
með opin augu

Réttlætið virkar svona
Við erum hætt að vona
______________