Ég ver lítið barn
og ég lík mér við ströndina.
Tveir dökklæddir menn
gengu franhjá
og heilsuðu:
Góðan dag, litla barn,
góðan dag!
Ég ver lítið barn
og lék mér við ströndina.
Tvær ljóshærðar stúlkur
gengu framhjá
og hvísluðu:
Komdu með ungi maður,
komdu með!
Ég var lítið barn
og lék mér við ströndina.
Tvö hlæjandi börn
gengu framhjá
og kölluðu:
Gott kvöld, gamli maður,
gott kvöld!
Steinn Steina
