Hæhæ, ef þú nennir ekki að lesa þetta allt farðu þá bara neðst og lestu skilaboðin þar og ef þú vilt gefa álit án þess að vera búin/nn að lesa allt þá máttu bara setja nafnið á ljóðinu með

Here we go…


Lamaður af ást
Ég fór út í búð
að kaupa rjóma
þar varst þú, að afgreiða á kassanum í horninu
falleg, eins og rós í blóma.
Mér finnst
í hvert sinn sem ég sé þig
að ég sjái inn í paradís
inn í paradís og þar ert þú,
dýrkuð af öllum hinum englunum, meir en sjálfur guð.

Ljósa hárið þitt minnir mig einna helst á tunglskin
tunglskin sem endurspeglast
á kyrru vatni
á niðdimmri, stjörnulausri nótt

Þú veist ekkert hver ég er,
bara einhver lúðaæegur lítill drengur
með gler
augu.
Vild'ég þyrði að tala við þig,
en ég er feiminn,svo feiminn.
Læt mér, því miður, nægja
að dást
að þér úr fjarlægð,svo feiminn-og auk þess lamaður af ást

Það sem ég vil segja

Ég veit.
Ég veit hvað ég vil segja.
Ég veit hvað ég vil segja þér.

Ég veit ekki.
Ég veit ekki hvernig ég á segja það.
Ég veit ekki hvernig ég á segja þér það.
Ég veit ekki hvernig ég á segja þér það sem ég vil segja, segja þér

Hvað?
Hvað er ég að reyna?
Hvað er ég að reyna að segja?
Hvað er ég að reyna að segja þér?

Ég.
Ég er að reyna.
ÉG er að reyna að segja þér.
Ég er að reyna að segja þér hvað mér finnst.
Ég er að reyna að segja þér hvað mér finnst um þig.
Ég er að reyna að segja öllum hvað mér finnst þú vera falleg.

Let me be

Stay away from me, please just let me be

Stay away from me, please just let me be

You are hurting me
Everything is shattering
within my body
Everything has already been broken
inside my soul

By you.

Stay away from me, please just let me be
Don't want to hurt myself, don't want to hurt my friends

Stop
talking to me, please just let me be

Don't want to kill myself, don't want to kill these people either

Stay away from me, please just let me be
This is not who I am
I really do give a damn
… … … … … … … …
Please
don't make me do it
… … … … … … … …
I will have no more of this
get out
of my head

My mind is not yours
it belongs to me, not to all y'all inside it
… … … … … … … …
FUCK OFF, just LEAVE ME ALONE

Stay away from me, please just let me be
… … … … … … … …
Stay away from me, please just let me be
… … … … … … … …
Stay away from me, please just let me be

It hurts
get out of my head
or
I'll
make
you
*BANG*

punktur,punktur,punktur-Risaeðlur að spila borðtennis- punktur,punktur,punktur

Nístandi
Sárs-
auki

Get ekki
hugsað rökrétt

Mér finnst eins og það séu
…Risaeðlur að spila borðtennis,
með hausnum AF mér

Og allir hlægja að mér
er ég hleyp haus
laus
um göturnar og kless'a ljósastaura.

Mér líður illa.
Heila
hvelin
á leið sitt í hvora áttina.
Hausinn springur, heilaslettum rignir yfir veröldina.

Mér finnst eins og það séu
…Risaeðlur að spila borðtennis,
með hausnum AF mér
Og þær hlægja að mér
og þú hlærð að mér, allir
er'að hlægja að mér

Mér finnst eins og það séu
…Risaeðlur að spila borðtennis,
með hausnum AF mér
Og þær hlægja að mér
og þú hlærð að mér, allir
er'að hlægja að mér
Allir er'að benda á mig,
allir eru á móti mér
ég er einn
á móti öllum hinum

Og…[það]..er…ris…[a]…eðl…[ur]…að
spila borðtennis með hausnum AAAAF mér
Og
þær spila
og spila og spila og spila

—borðtennis með hausnum af mér

…Það var samt verra þegar þær spiluðu með búkinn áfastann.
En smám saman losnaði hausinn af
og þá voru
Risaeðlur að spila borðtennis með hausnum af mér
meðan
búkurinn hljóp
og hljóp og hljóp og hljóp

Mér finnst eins og það séu
…Risaeðlur að spila borðtennis,
með hausnum AF mér
Og þær hlægja að mér
og þú hlærð að mér, allir
er'að hlægja að mér
Allir er'að benda á mig,
allir eru á móti mér
ég er einn
á móti öllum hinum





Þið megið endilega koma með fullt af álitum því að mér finnst öll ljóðin mín vera frekar léleg og leiðinleg en allir vinir mínir segja að þau séu geðveikt góð, en ég held frekar að ég treysti fólki sem þekkir mig ekki neitt og er því hlutlaust, auk þess að hafa mikinn áhuga á ljóðum, kv. Estorriyol