gengdarlaus græðgi
gjörspilltra
og geðvondra,
gufuruglaðra guma…

með glottið
uppsett…

yfirboðararnir yfirvaldið yfirstéttin
yfirþyrmandi og
innilega geðsjúklega
gjörsneydd/gerilsneydd
því góða…

því yndislega…

ó, hans
hátíðlegi heilagleiki
heimaalni heimskingi
hortugi og hrokafulli
hræsnari
hoppaðu upp í…