Ég elska þig heitar
en nokkurn áður
og hata þig
einnig mest.
Mitt í
ástarsæluvímunni
grípur mig löngunin
til að bíta þig,
sjá þér blæða,
heyra öskur þín.
Svo vil ég
vefja þig
líkama mínum
og lina kvöl þína,
búa um sár þín
með ást minni.