Óttaslegin nóttin geymir ásjónu þína
stílhörð fötin skýla útlínum mjúkum
fjarvera okkar verður sárleg þrautarpína
andi okkar opnast er við einveruna ljúkum

þú glóir af lífsorku sem mannfólki skortir
snerting þín ristir neista í blautu báli
einsemdin skilin eftir og þögnin gortir
sálirnar tengjast meðan hjörtun tala sínu máli
“True words are never spoken”