Þöglar raddir
öskra hvíslandi
í huga mér.
Segja mér það sem
ég vil ekki vita,
neyða mig til að sjá.
„Sjáðu lífið,
sjáðu hvernig
heimurinn er.
Sjáðu hvernig
heimurinn hafnar
fólki eins og þér.“