Hvað sem þú gerir,
og hvert sem þú ferð,
skalt þú aldrei fá
að gleyma mér.
Ég verð alltaf með þér,
í heitum vindinum
og blikandi augum
finnur þú mig.
Þar sem þú gengur
eftir mannlausri götunni
finnur þú návist mína,
heyrir rödd mína
í bergmáli skrefa þinna,
sérð mig
í hinum dansandi skuggum.