Hendur þínar strjúka líkama minn
og múrarnir um sál mína hrynja.
Ég bráðna inn í þig
og það er ekki lengur hægt að vita
hvort höndin sem hreyfist svo hægt,
er mín eða þín,
hvort augun sem nú sjá heiminn
í nýju ljósi
eru mín eða þín,
hvort hjartað sem bifast af þrá
er mitt eða þitt.