Þú ert bráðin,
og mín innri kisulóra
læðist
gegnum frumskóginn,
stekkur
á þig og
slítur þig í sundur
í blóðuga hluta.

Þú ert veiðimaðurinn,
og særða dúfan í mér
skelfur og
felur sig í skóginum
er þú nálgast
og snýrð hana
úr hálsliðnum
án miskunnar,
án tilfinninga.