Þú hefur svikið mann og annan,
stungið margan mann í bakið.
Svipt þá allri sjálfsvirðingu
og sparkað fast í ný dautt líkið.

Eigi er það góður siður
að svíkja þá er elska yður.
Seinna muntu læra, unga dama
að ekki er öllum sama.

Þér mun hegnast þessi hegðun
bitna mun hún hart á þér.
Því dag einn munt þú verða svikin
af þeim sem er nærstur þér.