hugur minn reikar í allar áttir.
í leit orðum og myndlíkingum.
leit´að því sem er við hæfi
lýsir réttri tilfinningu.

Reyn´að finna rétta stílinn,
rétta formið, rétta braginn.

Krota niður þunga þanka
á krumpað blað í möppu minni.
hugarangur mitt um heiminn
skjalfest er á þessu blaði.

Reyn´að koma hugsunum í orð
mistekst alltaf herfilega.
Vild´ég hefði blessun óðins.
Vild´ég væri afbragðsskáld
þá gæt´ég kannski samið ljóð.

get það ekki af neinu ráði.
vantar alltaf réttu orðin.
vild´ég gæti samið vísur
Vild´ég hefði kvasisblóð.