Draumasmiður;
skýjahallirnar
sem þú byggðir
mér í gær
hrundu
með hækkandi sól.

Verndari sálarinnar;
tilverunni
umturnað,
heimurinn
rústir og myrkur
á ný.

Skapari stjarnanna;
gefðu mér
örlítinn tunglsgeisla
til að fleyta mér
gegnum sortann.