Bob bjó einn í grænmáluðum kofa
björgun þurfti hann við að pissa og sofa.
Guðinn sem stjórnaði öllum hreyfingum hans
hætti að nenna að stjórna lífi þessa manns.

Bob og hans álpappírsálfur
ákvað í skyndi að stjórna sér sjálfur.
Allt gekk sem að skildi
og sá einmanna fór á klóið þegar hann vildi.

Bob bjó til örbylgjumat
en bragðið var reyndar algjert frat.
Svo hann settist niður og las bók nokkra
og núna er hann meðal úrvals kokka.

Einn daginn kynntist Bob nokkrum konum
kerlurnar bættu gleðina hjá honum.
Sjálfstæðið var bara besta mál
en birtist þá guðinn með reiða sál.

Guðinn kom og rak kerlurnar heim
og klukkutíma seinna fréttist ekkert meira af þeim.
Þá var klukkan sko orðin sjö
og strákurinn var rekinn úr sims tvö.