Sterkar ástríkar
hendur þínar
vekja sofandi losta
innra með mér
þegar snerting þeirra
kortleggur áður óþekkt
unaðssvæði.

Þær bera mig með sér
djúpt djúpt inn í lönd
innstu drauma minna
þar sem ég finn
fullnægju og frið
í hlýjum faðmi þínum.