lykill
brotinn og ryðgaður…
í hjarta þínu.
fastur að eilífu
fer ekki fet.

étur þig að innan
líkami þinn rotnar
brotnar niður í frumeindir
verður að engu

sál þín gufar upp
eftir verður ekkert af þér
ekkert nema ryðgaður lykill
lykill sem banaði þér.