finn andardráttinn þyngjast
einsog kaupmáttur íslenskuþjóðarinnar
mátturinn er að hvefa
líkt og íslenska krónan
smám saman veslast ég niður
álit mitt á lífinu fellur
einsog gengið á hlutabréfum microsoft
uns lífið birtist fyrir augum mínum
vonbrigði, örvænting og vonleysa
ekkert er eftir nema dauðinn
og ég kemst ekki hjá því að hugsa
“This program has performed an illegal operation and will be shut down immediately!”
átta mig á því að líf mitt er líkt og windows
ónýtt og ömurlegt frá upphafi til enda.