ég man þá gömlu daga
er nintendo og gameboy réðu heiminum
ljúfar stundir átti ég með þeim.
með sinalco í annari og RC Cola í henni
spilaði ég súper maríó.

en nú er tíðin önnur
engin gömul nintendo
ekkert RC cola
enginn maríó.

hvert fóru þessir dagar?
góðu stundirnar?
hvað varð af turtles köllum
coca-cola jójóum
og gömlu góðu körfuboltamyndunum?

hvað varð um þessa hluti?
þessa vini okkar allra?
hafa pokémon og digimon kannski drepið þau?