verð að halda þetta út
má ekki gefast upp
ég get þraukað
ég er sterkur
læt ekki bugast.

nei, þetta´er of erfitt
bara einn sopa
það hlýtur að vera í lagi
ef enginn sér til þá gerðist þetta aldrei

nei, kemur ekki til mála
ég má ekki gefast upp
verð að þrauka
halda áfram.

en, mig langar svo í
aðeins einn sopa
einn pínkuponsusopa..
það getur ekki skaðað mig neitt, er það nokkuð?

hættu þessu væli!
vertu sterkur
þú getur þetta
þetta er ekkert mál
bara eitt skref í einu…