Fyrir tveimur árum ég kvaddi þig með tárum
en fyrst náðum við saman
Mánuðirnir liðu, vonir mínar biðu
og ég grét
Urðum við svo vinir, en ekki eins og hinir
Samband okkar var sérstakt
Sama hvað þú sagðir, eða er þú þagðir
aldrei gat ég hatað þig

Hvað mun ég gera þann dag er þú flýrð?
Þegar í allt öðru landi þú býrð
Ég get ei meir, verð að tjá hvað mér finnst:
Ég elska þig
Ég þykist vita hvert svarið þitt er
Þú vilt ei verja þinni ævi með mér
en ég dái þig, dýrka þig, trúi á þig
Ég elska þig.

Örlagadísir, hann allan heiminn lýsir
þegar ég er með honum
Segir mér hvers vegna þið viljið mér ei gegna
Ég sakna hans. Ég skil ekkert í ykkur

Hvað mun ég gera þann dag er þú flýrð?
Þegar í allt öðru landi þú býrð
Ég get ei meir, verð að tjá hvað mér finnst:
Ég elska þig
Ég þykist vita hvert svarið þitt er
Þú vilt ei verja þinni ævi með mér
en ég dái þig, dýrka þig, trúi á þig
Ég elska þig.

Þú hlustar ekki á mig er ég segi við þig
hvað þú skiptir mig miklu
og ég er orðin þreytt á því, taktu eftir
því ég elska þig…
Ég finn til, þess vegna er ég