þessi
gráa rigning

græt með henni

get ekki farið út
í dag

án
þess að blotna

græt ekki

af gleði
yfir að eiga
þak yfir höfuðið

og góða kápu

græt á góðum degi
yfir að geta

ekki verið úti
þegar sólin skín