Dauðinn ert þú minn eini vinur
Ég hugsa til þín í tíma og ó tíma
Hvenær þú kemur til mín ég ei veit
Þú ert svo sterkur við þig er erfitt að glíma
Þegar þú kemur er þig erfitt að flýja
hvort sem ég er staddur úti inni borg eða sveit
Stundum langar mig þig að faðma
knúsa þig kyssa og leggast í þína arma
mér finnst eins og þú sért mína eina frelsun
EF ég færi á vit þín myndi það einhver harma
Þú mig blekkir,Þú mig freistar
þegar þú hlekkir þá slökkva mínir neistar
Hættu að angra mig láttu mig í friði
Ég vil ei strax hitta þig og við þig dansa
hættu að sýnast svona fagur hættu að glansa
Ég vil bara lifa mínu lífi
en stundum er ég bara svo langt niðri