Þú ert minn besti vinur
en tilfingar þínar sveiflast í vindi eins og hlynur
Stundum erum við eins og hvítt og svart
pipar og salt rífumst alla og allt
en þú hefur alltaf getað lund mína kætt
Saman höfum við gengið í gegnum súrt sætt
Ósjaldan höfum við málað bæinn rauðann
Af hverju kemur þú ekki til mín þegar þú hugsar um dauðann.
Fyrir þig myndi ég ganga til heljar og til baka
Fyrir þig myndi ég ganga á hinum kaldasta klaka
Komdu til mín þegar þú ert þungur
ekki sóa æskunni þú ert bara einu sinni ungur
Ekki vera svona stoltur okkur líður öllum stundum skítt
Í þessu lífi hamingjan fæst ei frítt
Ég veit vel að þú kannt fyrir þér að vinna
Stundum verður þú sjálfum þér að sinna
Ég bara vildi að þú talaðir við mig
orð fá ekki lýst hvað mér þykir vænt um þig
Ef það er eithvað sem þú ættir að vera búin að læra
er það að ég myndi þig aldrei svíkja né særa
Ég vildi bara að þú myndir sjá
að ég myndi hvenær sem er þér mín eyru ljá
og ég myndi hlusta,lof mér að vera þinn verndarengill