Það undarlega

Það eru áhrifin sem þú hefur á mig
því samtölin við þig halda dögunum uppi.
Þegar þú ert nálægt
get ég ekki annað en talað við þig
-verið hjá þér
-snert þig.

Ég geri undarlega hluti fyrir þig:
-með augunum leita ég að þér meðal ókunnugura.
Það sem þú segir er mér heilagt.
Hver andardráttur er bara fyir þig.

Þetta er samt ekki það undarlegasta.
Það undarlegasta er að þú veist ekki einusinni af þessu.

——————————————-

Þetta er frumraun mín og alls ekki fullslípað en látið mig samt endilega vita hvað ykkur finnst!