Skilaðu mér öllu
öllu sem ég hef gefið þér.

Pakkaðu minningunum vandlega niður
í pappakassa,
ásamt brosinu mínu
snertingu minni
tárum mínum
og kossum

og mundu eftir að setja “brothætt” merkimiða