Hugur minn þreytist á sögumönnunum,
í flöktandi bjarma eldsins
slær hjartað of hratt
fyrir hæglátar raddir þeirra
og pípureyk sem liðast frá vitunum.

Ég vil dansa við villtan trumbusláttinn
sem bergmálar í höfði mér,
meðan glóðin brennur í sálinni
og aftur kviknar glampi
í augunum.