þú raðar saman öllum
drykkjukvöldum ævi þinnar
og kallar þau æsku þína

þú kallar svo alla morgna,
þar sem þú lást í þynnku
og gast ekkert gert, elli þína

draumlausar næturnar
þegar þú svafst úr þér ölvun
kallar þú svo líf þitt