Ég þarf að losa
um ýmis leyndarmál
Ég þarf að ræða
um ýmsar minningar

Óttinn við það
að missa þig
heldur aftur af mér
að segja þér

Ég var svo hrædd
og eitthvað svo ein
Aðeins lítið stúlkubarn
sem horfði á þetta allt

Hræðileg martröð
líf mitt var
Horfði á sársauka
minnar eigin móður

Og ég svo ung
og ekkert gat
Var of lítil
til að verja þig

Svo kom að því
þessu linnti
og minngarnar
svo margar

sátu eftir….
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"