Þegar ómar næturhörpunnar
spegla sig í regnboganum
sem vaggar
á gárum í voginum
við skímu borgarljósanna

Þá verður fegurðin
svo yfirþyrmandi
að máninn felur andlit sitt
feimnislega vafinn skýjatrafi
stjörnurnar blikna og norðurljósin nötra

Þá stari ég hugfangin á fegurðina
og leita að lýsingarorðum
sem duga
… leita að orðum
til að lokka þig með mér næst