Allt fram streymir endalaust,
ár og dagar líða.
Nú er komið hrímkalt haust,
horfin sumars blíða.

Fölna grös, en blikna blóm,
af björkum laufin detta.
Dauðalegum drynur óm
dröfn við fjarðarkletta.

Allt er kalt og allt er dautt,
eilífur ríkir vetur.
Berst mér neggí brjósti snautt,
en brostið ekki getur.
Fisksalinn Ottó