Flétta silfurþræði
úr dyn kattarins,
rótum bjargsins
og hjartarótum mínum.

Hnýti smágerðar snörur,
hárfínar gildrur
til að leggja fyrir saklaus orðin
í myrkviðum málsins.

Seinna sel ég þau í ánauð
í fastriðnum böndum
ljóða minna
svo hver megi gera við þau
sem honum sýnist.