ég vildi bara að þú vissir
að ég hef ekki verið heill maður
síðan ég skaut þig í hausinn með orðum mínum

þetta var óvart
orðin hrukku út úr byssunni minni
eftir lást þú með lit fjarlægðarinnar
í köldu hálfbrosinu

ég er ekki vissum hvernig ég á að lesa þessi óformlegu bréfsnifsi
sem þú sendir í gegnum faxtækið mitt
skriftin er illskiljanleg
en það sem ég næ er
…er enn að leita en…ekki það sem…finna
af hverju…mig
ég…fjarlægð

eigum við kannski að hittast?