Ég geng í eigin skugga,
og spor mín eru tár.
Engin ljós mig hugga
-himinninn er grár.

Varstu rósin eina,
eða vertu aldrei til?
Var mig bara að dreyma
augna þinna hyl?

Þögnin kallar til mín
og myrkrið vísar veg.
Hægt ég stefni til þín
-skref mín eru treg.