Ég geng í eigin skugga
og spor mín eru tár.
Engin ljós mig hugga
- himinninn er grár.

Varstu rósin eina
eða varstu aldrei til?
Var mig bara að dreyma
augna þinna hyl?

Þögnin kallar til mín;
mér myrkrið vísar veg.
Hægt ég stefni til þín
- skref mín eru treg.