Hlauptu stúlka litla,
hlauptu!
Yfir víðfeðmar huglendurnar,
hlauptu.

Öskraðu stúlka litla,
öskraðu!
Bráðum kemur úlfurinn
og étur úr þér hjartað.

Veistu ekki stúlka litla,
veistu það ekki?
Að í draumum
heyrir enginn þig öskra
og þú
kemst aldrei
undan!