Fannstu þá aldrei
blómanna angan
og ilvolgan vindinn vangann
strjúka?

Getur það hugsast
að brosið þitt bjarta
hafi verið brostið hjarta
í felum?