ég horfði í andakt
á himinboga
halla sér

í sápukúlu

hóf mig á loft
og hallaði mér þar líka

leið svo vel
í vaggandi veröld

gleymdi mér í gullnu hulstri
glitrandi í regnboga litum

barst með blænum og blíðlega gældi
við blómgað tré

bara til að strjúka – strjúka

vaknaði upp af værðar draumi
er veröldin sprakk



(sápukúla getur vakið draum
- ekki síst ef sjálfur regnboginn hefur sest þar inn)