glampandi blíðan glennir sig
inn um gluggann
og gefur auga

konunni með kústinn

sem horfir dreymin
á hafið handan við húsin
og fjarlæg fjöllin í fjólubláu mistri

glampandi blíðan
glennir sig inn um gluggann
og gyllir agnir

sem konan eltir

glampandi blíðan glennir sig
og glepur að lokum

konuna

sem dáleidd af draumnum
dansar við kústinn