læddist
fram á varir mínar

laumupokaðist
í skjóli hugsana minna

án þess
að ég gæfi því gaum hvert stefndi

og miskunnarlaust
ljóstraði það upp um leyndarmálin
sem ég hafði læst svo vendilega inni í hjarta mínu