ég stóð á öndinni
af hrifningu
yfir eigin ágæti

og lýsti með tilþrifum
tækninni minni:

“vots mí; æv gottit; æm brilljant”

en þegar mér
fataðist sundið
saup ég hveljur
úti í miðri laug

og stóð á öndinni
- aumingjaleg

og sagði svo á innsoginu:

“its not fönní; æ olmóst drávnd”



(eitt sinn… var ég að reyna að betrumbæta skriðsundstæknina mína)